Nýi réttingabekkurinn frá Autorobot eykur allt öryggi og nákvæmni við réttingar.

Mælingar á öllum bílum eru í tölvu, hvort sem um undirvagn eða yfirbyggingu er að ræða.

Allar upplýsingar um nýja gerðir bíla eru uppfærðar um leið og þeir koma á markaðinn.

 

Bílasprautun Suðurnesja var stofnað 26.09.1992 en hóf starfsemi 01.10.1992.
Fyrirtækið var stofnað af Jóni Brynleifssyni og Aðalsteini Jónatanssyni.
Núverandi eigendur eru Ólafur Birgir Bjarnason , María E. Hauksdóttir og Júlíus Gunnlaugsson

Helstu viðskiptaaðilar sem Bílasprautun Suðurnesja verslar við eru N1, Snorri Guðmundsson ehf, P.Sam. hf, Toyota á Íslandi og Hæco. ehf.

 

 

 

 

Netfang: verkstæði retting@simnet.is  skrifstofa bilasp@simnet.is

 

Kort af staðsetningu Bílasprautun Suðurnesja

 

 

Tenglar

 

Toyota á Íslandi   Wurth  Bílaþjónusta Vitatorg ehf

 

 

 

 

 

 

Bílasprautun Suðurnesja vinnur eftir tjónamatskerfinu Cabas, sem er sænskt og hefur verið notað þar í landi í yfir 25 ár. Kerfið er uppbyggt þannig að hvert handtak er tímamælt og verður þannig til staðlað einingakerfi jafn í réttingar og málningarvinnu. Þetta er tölverð breyting fyrir okkur þar sem nú er unnið innan fyrirfram ákveðinna tímaramma. Til dæmis ef gera átti við frambretti og húdd þá gat tíminn sem það mátti taka verið allt frá 11 til 16 tímar allt eftir því hvaða tjónamatsmaður vátryggingarfélaganna sá um matið. Nú er slíkt úr sögunni þar sem forritið reiknar það út á mjög nákvæman hátt. Afleiðing þessa er meðal annars sú að verkefnastjórnun hefur breyst og afköst hafa aukist - bæði viðskiptavinum og okkur til hagsbóta.
Cabas-forritið er í stöðugri endurnýjun. Verð á varahlutum er uppfært reglulega og er það gert í samstarfi við bifreiðaumboðin.

 

 

Myndasyrpur úr leik og starfi

Gaman saman

Grillveisla

Starfsmenn